19.12.2007 | 23:22
Viðskiptatækifæri
Einföld lausn ef börnin ykkar eru mjög óþekk. Leigist á 1.500 krónur á tímann.
Og annað. Það greinilega borgar sig að tala fornt mál. Rakel María dóttir mín hneykslast og hváir ef ég nefni gömul orð. Úr frægri verslunarferð okkar í Kringlunni. Réttu mér skriffæri sagði ég: hva? Það er bannað að handleika hlutina, hva? Mér skilst að textinn í samræmdu prófi í 4. bekk hafi verið 40-50 ára gamall. Dóttirin (Berglind Eva) brilleraði og aðeins örfá prósent talin á annarri hendi voru hærri en hún í íslenskuprófinu. Vona að mér fyrirgefist að opinbera stolt mitt hér.
Það er kominn smá frumsýningarkvíði í mína, en æfingarnar tvær í dag gengu þrusuvel svo það ætti að vera óþarfi Nú ætti ég ekki að eiga á hættu að gestir jólaskemmtunarinnar á morgun rekist hér inn þar sem klukkan er rúmlega miðnætti. Ég samdi leikrit þar sem allir nemendur bekkjarins eru með hlutverk. Í stórum dráttum snýst leikritið um að þátturinn Allt í drasli kemur í heimsókn í Grýluhelli. Allir jólasveinarnir eru settir í þrif m.a. við að tæma koppa, losa burt köngulóarvefi og ýmislegt. Í lok leikritsins kemur svo þátturinn Innlit-útlit í heimsókn í Grýluhelli með alls konar brilljant komment.
Hlakka til að sýna
Mín dóttir var Þvörusleikir í jólasveinavísum Jóhannesar úr Kötlum á skemmtilegri jóladagskrá í Breiðagerðisskóla í dag. Hún stóð sig vel. Það var ball með lúðrasveit og svo sameiginlegt hlaðborð.
Gangi ykkur vel að undirbúa heilög jól.
Tenglar
Áhugaverðir vefir
- Heimildamyndir
- Flotta heilsuhótelið hennar Evu minnar í Efri-Vík hjá Klaustri
- Fræðsluefni
- Íslandsvefur
- Þingeyri
- Gagnvirkir námsvefir ýmislegt gagnlegt
Aðrir bloggarar
Fjölskyldan
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Til lukku með duglegu frænkuna :) Ég fæ líka ábendingar um að tala ekki fornmál hérna heima hjá mér, hehe.
Bryndís (IP-tala skráð) 19.12.2007 kl. 23:52
Þér megið gjarnan segja þessari þekku tátu að hún eiga að taka yður til fyrimyndar...
Einar Bragi Bragason., 20.12.2007 kl. 01:08
Hehe já nú veit ég hvaðan ég fékk þetta. Þegar ég tala um jór hlær fólk að mér!
Íris Fríða , 20.12.2007 kl. 15:41
Fylgir hundurinn með?
Björgvin Kristinsson, 20.12.2007 kl. 19:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.